Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem hefur verið að glíma við heilsubrest og tjón á heimilinu var ein með allar tölurnar réttar. „Loksins gerist eitthvað gott!“ sagði konan þegar hún kom loks upp orði. Það er því ljóst að stóri vinningurinn hefði ekki getað komið á betri tíma fyrir þessa fjölskyldu sem hefur hingað til verið frekar grátt leikin af örlögunum en horfir nú bjartari augum fram á veginn - enda á eitt af fyrstu verkunum að vera langþráður nýr bíll!
Annar heppinn spilari sem vann stóran vinning heimsótti einnig höfuðstöðvar Íslenskrar getspár í vikunni og í því tilviki var lukkan kannski í genunum. Kona sem vann 3. vinning í Eurojackpot, tæpar 19 milljónir króna, sagði frá því að móðir hennar hefði unnið þann stóra í Lottó fyrir mörgum árum. „Nú fæ ég að vinna eins og mamma!“ sagði þessi heppni áskrifandi sem ætlaði m.a. að nýta fjármunina til að hjálpa uppkomnum börnum sínum við hinar ýmsu framkvæmdir sem þau standa í um þessar mundir.
Vitað er að starfsfólki Íslenskrar getspár finnst fátt skemmtilegra en að taka á móti heppnum spilurum og þeir eru orðnir ansi margir á þeim 40 árum sem eru liðin frá því að fyrst var spilað í Lottó á Íslandi. Og vonandi verða þeir bara sem allra flestir!