Enginn náði að landa 1. vinningi þessa vikuna og flytjast því rúmlega 2,3 milljarðar yfir til næstu viku. Einn var með 2. vinning og var sá miði keyptur í Noregi, hlýtur hann rúmlega 22 milljónir króna. Hinn al-íslenski 3. vinningur situr sem fastast og tekur með sér rúmlega 3,5 milljónir til næstu viku.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en tveir náðu 2. vinningi sem er upp á 100 þúsund kall, annar miðinn var keyptur í Krambúðinni á Selfossi en hinn er í áskrift.