Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir rúmar 83,5 milljónir króna í sinn hlut. Einn miði var keyptur í Danmörku og þrír í Þýskalandi. Átján miðahafar skiptu svo með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmar 10,4 milljónir króna í sinn hlut. Þar á meðal voru tveir miðahafar á Íslandi. Miðarnir voru báðir keyptir í Appinu. Hinir miðarnir voru keyptir í Noregi, Spáni, Grikklandi, Svíþjóð, Póllandi, tveir í Danmörku og níu í Þýskalandi.
Einn áskrifandi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2 milljónir króna í vinning. Fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Verslun FB lagna, Sunnubraut 14-16 í Vík, tveir í Appinu og einn miði er í áskrift.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 4.288.