Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Vikinglotto útdrætti kvöldsins en þrír heppnir miðahafar voru með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 608 þúsund krónur í vinning. Einn miðanna var keyptur á vef okkar lotto.is en tveir miðanna eru í áskrift.
Jókerinn gekk ekki út að þessu sinni en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 100.000 í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Mini Market á Smiðjuvegi, tveir miðanna í lottó appinu og tveir á vef okkar lotto.is.