Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 424 þúsund í vinning. Miðinn er í áskrift.
Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund krónur. Fjórir miðanna voru keyptir í appinu og fimmti miðinn er í áskrift.