Glúrinn tippari var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum og fær rúma milljón krónur í vinning. Ekki nóg með það heldur var hann líka með alla leikina rétta á síðasta Sunnudagsseðli og hlaut þá tæpar 200.000 krónur í vinning. Tipparinn býr á Akureyri og styður Skautafélag Akureyrar.
Einn tippari var með alla leikina 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðin laugardag og fær hann 900.000 krónur í sinn hlut.