Glúrinn tippari vann 20,5 milljónir króna á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag þegar hann var einn Íslendinga með 13 rétta.
Tipparinn sem keypti miðann á sölustað í Reykjavík, þrítryggði 5 leiki og tvítryggði 3 leiki. 5 leikir voru með einu merki.
Síðasti leikurinn á seðlinum var leikur Nottingham Forest gegn Man. City. Tipparinn góði hafði tvítryggt leikinn þannig að hann tippaði á heimasigur eða útisigur. Það var því mikil gleði þegar Nottingham Forest knúði fram 3-1 óvæntan sigur og tryggði tipparanum rúmar 20 milljónir í fyrsta vinning.