Fyrsti vinningur gekk ekki út í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því tvölfaldur í næsta útdrætti. Einn miðhafi var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 430 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Lottó appinu.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125.000 krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Lottó appinu en hinir fjórir eru í áskrift.