Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Fjórir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 162 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur á Olís á Siglufirði, einn miðinn á vef okkar lotto.is og tveir miðar eru í áskrift.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn er í áskrift. Þrír miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125.000 krónur í vinning. Allir þrír miðar voru keyptir inn á Lottó appinu.