Fréttir

lotto

vikinglotto

Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir

10. Jun 2026, 15:21

Það hefur verið nóg um að vera hjá Íslenskri getspá að undanförnu og nú hafa tveir skemmtilegir vinningshafar með stóra potta og áhugaverðar sögur að baki bæst í hóp heppinna milljónamæringa.

Annar þeirra er rúmlega fimmtug amma sem hefur verið með Lottótölurnar sínar í áskrift um árabil. Tölurnar eru henni kærar, enda byggja þær á afmælisdögum barna hennar og barnabarna, og hefur hún alltaf tengt þær við gæfu og góða tíma. Sú trú reyndist vel þegar í ljós kom að hún var með allar tölurnar réttar og hafði þannig unnið rúmar 11,6 milljónir króna. Hún hafði ekki hugmynd um vinninginn þegar góðu fréttirnar bárust með símtali sem kom skemmtilega á óvart.

Ekkill hafði heppnina með sér í appinu þótt hann væri lítið fyrir tölvur og tækni.

Hinn hlaut þriðja vinning í Vikinglotto, að upphæð 9,8 milljónir króna. Sá er rúmlega sjötugur og keypti miðann sinn í Lottóappinu. Hann viðurkenndi fúslega að vera lítið fyrir tölvur og tækni en sagði appið hafa komið sér á óvart og var enga stund að læra á það. Vinningshafinn missti konuna sína á síðasta ári og þegar hann keypti miðann bað hann hana í hálfkæringi um að senda sér nú Lottóvinning. „Og svo sannarlega gerði hún það í þetta sinn, þessi elska,“ sagði hann og brosti breitt.

Starfsfólk Íslenskrar getspár hefur það skemmtilega hlutverk að slá reglulega á þráðinn til nýrra vinningshafa með góð tíðindi. Hvort sem það eru langþráðar lukkutölur eða óvæntir vinningar þá virðist heppnin vera með Íslendingum þessa dagana og gleðin alltumlykjandi. Allir vinningshöfum fá innilegar hamingjuóskir og allir spilarar þakkir um leið fyrir veittan stuðning. Hann skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af öllum þeim ágóða sem Lottó gefur af sér.

vikinglotto

Úrslit í Vikinglotto 22. júlí

Hvorki 1., 2. né hinn al-íslenski 3. vinningur gengu út í Vikinglotto útdrætti kvöldsins. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í sinn hlut. Fjórir miðanna eru í áskrift og sá fimmti var keyptur í Lottó appinu.

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 96,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 298 þúsund krónur í vasann. Fjórir miðar voru keyptir á appinu okkar Lottó, einn á vefsíðu okka... Lesa meira

vikinglotto

Vikinglotto - enginn með 1. vinning!

Enginn var með 1. vinning í Vikinglottó kvöldsins en einn heppinn Norðmaður var með 2. vinning og fær hann óskiptar 552,5 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér hinum al-íslenska 3. vinning og hlýtur hvor þeirra rúmar 2 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir á vefnum okkar lotto.is og í Lottó appinu. Enginn... Lesa meira

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir