Potturinn stækkar og stækkar hann verður 5. faldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins.
Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra tæpar 390 þúsund krónur. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á Lottó appinu
Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en tíu miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur á N1, Ísafirði, fimm eru með hann í áskrift, þrír keyptu miðann í appinu og einn keypti hann á vefsíðu okkar, lotto.is