Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum.
Báðir seðlar gilda samkvæmt venju í Getraunadeildinni.
Fréttir
Sunnudagsseðill lokar á laugardegi
13. May 2026, 11:03