Fréttir

getraunir

Tveir vinir með 13 rétta

14. Apr 2026, 08:02

Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta.  Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn. Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í félaga sínum hjá Hetti á laugardagskvöldinu og sagði frá vinningnum og hvaða kerfi hann hafði notað.  Félaganum leist svo vel á kerfið að hann notaði það til að tippa á Sunnudagsseðilinn og viti menn, hann fékk líka 13 rétta og 2.7 milljónir í sinn hlut. Kerfið árangursríka er R 9-0-1081 þar sem fjórir leikir eru með einu tákni og níu leikir með þrem táknum og Ú merki. Seðillinn kostaði 14.053 krónur.Þess má geta að báðir tippararnir taka þátt í getraunadeild Hattar en þar keppa 20 lið um meistaratitilinn og leika tvöfalda umferð á sama hátt og leikið er í ensku úrvalsdeildinni. Alls skipa 70 - 80 manns þessi 20 lið. Tipparinn sem fékk 13 rétta vann sinn leik í getraunadeildinni með 13 réttum gegn 10 réttum andstæðinganna. 

1x2

getraunir

Fékk 13 rétta tvisvar í röð

Glúrinn tippari var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum og fær rúma milljón krónur í vinning. Ekki nóg með það heldur var hann líka með alla leikina rétta á síðasta Sunnudagsseðli og hlaut þá tæpar 200.000 krónur í vinning. Tipparinn býr á Akureyri og styður Skautafélag Akureyrar. Einn tippari var með alla ... Lesa meira

getraunir

Einn tippari með 128 milljónir

Enski getraunaseðillinn reyndist tippurum erfiður um helgina og settu fimm jafntefli á seðlinum strik í reikning margra. Enda fór það svo að aðeins einn sænskur tippari var með alla leikina 13 rétta. Alltaf þegar aðeins einn tippari er með alla leikina rétta fær hann tryggðar í sinn hlut 10 milljónir sænskra króna eða ... Lesa meira

getraunir

Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund

Stuðningsmaður KFS úr Vestmannaeyjum vann rúmar 700 þúsund krónur á Miðvikudagsseðilinn hjá Íslenskum getraunum. Stuðningsmaðurinn keypti sparnaðarkerfi S 4-4-144 með fjórum tvítryggðum og fjórum þrítryggðum leikjum sem kostaði 1.872 krónur. KFS, sem leikur núna í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu er samt sem áður... Lesa meira

getraunir

Tveir hjá ÍFR með 13 rétta

Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og  vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR ha... Lesa meira

getraunir

Getraunaseðlar á meðan á HM stendur

HM seðlar á mánudögum koma í stað Sunnudagsseðlanna í Getraunadeildinni. Allir HM seðlar eru með 65 milljónir tryggðar fyrir 13 rétta.

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir