Potturinn verður tvöfaldur næsta laugardag en 1. vinningur gekk ekki út í Lottó útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum sem færir þeim rúmar 206 þúsund krónur. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur í Lottó appinu.
Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð en átta miðahafar voru með 2. vinning sem er að venju 100 þúsund krónur. Fimm miðahafar eru með miðann sinn í áskrift, einn keypti miðann sinn í Krambúðinni á Akranesi, einn í Vídeómarkaðinum í Hamraborg og einn á lotto.is.