Fréttir

getraunir

Vann 17,4 milljónir á Enska getraunaseðilinn

16. Mar 2026, 14:55

Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning.

Tipparinn var orðinn verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á laugardagskvöldinu. „Ég áttaði mig á því að ég myndi fá 13 rétta ef leikur West Ham og Man. City færi jafntefli.  Ég var nú svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða því ég treysti mér ekki til að vera heima og horfa á leikinn. Við komum svo heim klukkan tíu um kvöldið og þá tékkaði ég fyrst á úrslitunum og sá að West Ham hafði náð jafntefli og tryggt mér 13 rétta“.

Íslenskar getraunir óska tipparanum til hamingju með vinninginn.

getraunir

Vann 17,4 milljónir á Enska getraunaseðilinn

Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning. Tipparinn var orðinn verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á l... Lesa meira

getraunir

Tippari með tæpar 2 milljónir á Miðvikudagsseðlinum

Tippari sem styður Víking Ólafsvík vann í gær tæpar 2 milljónir fyrir að vera með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum. Tipparinn notaði kerfi S-0-10-128 sem gefur honum möguleika á að setja tvö tákn á  tíu leiki og setja eitt merki á þrjá leiki. Alls er kerfið 128 raðir og kostar það 1.664 krónur. Ke... Lesa meira

getraunir

1.2 milljónir til Eyja

Getraunastarfsemi hefur verið afar öflug í Vestmannaeyjum undanfarna áratugi og má segja að Eyjamenn hafi verið öflugir í tippinu alla tíð. Getraunastarfsemin skiptist á milli ÍBV annarsvegar og KFS hinsvegar og hafa þeir síðarnefndu staðið sig mjög vel og eru meðal söluhæstu félaga landsins. Þau fengu meðal annars 13 ... Lesa meira

getraunir

1X2 seðlar víxlast um helgina

Athygli tippara er vakin á því að í viku 1 á árinu 2026 munu Enski seðillinn og Evrópuseðillinn (Sunnudagsseðillinn) víxlast þannig að Evrópuseðillinn lokar á laugardeginum 3. janúar og Enski seðillinn lokar á sunnudeginum 4. janúar.

getraunir

Húskerfin skiluðu milljónum í getraunum

Jólin voru gjafmild hjá mörgum tippurum en tvö félög, FH og Fylkir, fengu 13 rétta í húskerfum sínum á Enska Getraunaseðlinum. Húskerfi Fylkis, sem kallast húskerfi Einars Ásgeirs, hefur verið starfandi í mörg ár og taka um 30 manns þátt hverja helgi. Um síðustu helgi gekk allt upp og náði kerfið 13 réttum. Vinningsupp... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir