Fréttir

getraunir

Dortmund - Barcelona

2. Apr 2025, 15:22

Því miður voru stuðlarnir á leik Dortmund - Barcelona sem fram fer 15. apríl rangir og höfðu víxlast frá stuðlum fyrri viðureignarinnar sem er Barcelona - Dortmund sem fram fer 9. apríl.

Íslenskar getraunir endurgreiða þeim tippurum sem tippað hafa á leikinn með stuðlinum 1.0 í samræmi við 25. grein reglugerðar fyrir Íslenskar getraunir. 

Íslenskar getraunir biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi mistök kunna að hafa haft í för með sér. 

Hlekkur á reglugerðina er hér

getraunir

Tippari með tæpar 2 milljónir á Miðvikudagsseðlinum

Tippari sem styður Víking Ólafsvík vann í gær tæpar 2 milljónir fyrir að vera með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum. Tipparinn notaði kerfi S-0-10-128 sem gefur honum möguleika á að setja tvö tákn á  tíu leiki og setja eitt merki á þrjá leiki. Alls er kerfið 128 raðir og kostar það 1.664 krónur. Ke... Lesa meira

getraunir

1.2 milljónir til Eyja

Getraunastarfsemi hefur verið afar öflug í Vestmannaeyjum undanfarna áratugi og má segja að Eyjamenn hafi verið öflugir í tippinu alla tíð. Getraunastarfsemin skiptist á milli ÍBV annarsvegar og KFS hinsvegar og hafa þeir síðarnefndu staðið sig mjög vel og eru meðal söluhæstu félaga landsins. Þau fengu meðal annars 13 ... Lesa meira

getraunir

1X2 seðlar víxlast um helgina

Athygli tippara er vakin á því að í viku 1 á árinu 2026 munu Enski seðillinn og Evrópuseðillinn (Sunnudagsseðillinn) víxlast þannig að Evrópuseðillinn lokar á laugardeginum 3. janúar og Enski seðillinn lokar á sunnudeginum 4. janúar.

getraunir

Húskerfin skiluðu milljónum í getraunum

Jólin voru gjafmild hjá mörgum tippurum en tvö félög, FH og Fylkir, fengu 13 rétta í húskerfum sínum á Enska Getraunaseðlinum. Húskerfi Fylkis, sem kallast húskerfi Einars Ásgeirs, hefur verið starfandi í mörg ár og taka um 30 manns þátt hverja helgi. Um síðustu helgi gekk allt upp og náði kerfið 13 réttum. Vinningsupp... Lesa meira

getraunir

1X2 seðlar víxlast um næstu helgi

Getraunaseðlar í boði fyrir viku 1. 2026 eru þessir: Evrópuseðillinn (Miðvikudagsseðill) verður 1. janúar. Evrópuseðillinn (Sunnudagsseðill) verður laugardaginn 3. janúar. Enski Seðillinn verður sunnudaginn 4. janúar. Athygli tippara er vakin á því að í viku 1 á árinu 2026 munu Enski seðillinn og Evrópuseðillinn (Sunnu... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir