Fréttir

eurojackpot

lotto

Þurfti að fara í kalt bað eftir að vinna 70 milljónir

21. Feb 2025, 15:12

Þrír vinningshafar með samtals 150 skattfrjálsar milljónir í Lottó og EuroJackpot 

Tveir skiptu með sér fimmföldum fyrsta vinningi í Lottó um síðustu helgi og fengu tæpar 40 milljónir hvor og höfðu báðir keypt miðana í Lottóappinu. Annar þeirra var í bíltúr ásamt dóttur sinni þegar síminn hringdi og sagði þegar hann sá að það var Íslensk getspá: „Hva, eru þau að hringja í mig? Ég skulda þeim engan pening!”. Hafði hann þá gleymt því að hann hefði tryggt sér miða og varð að vonum himinlifandi með góðu fréttirnar. 

Hinn vinningshafinn var að skála í góðra vina hópi þegar hann kíkti í Lottóappið af rælni. Hann fékk félaga sinn til að fara yfir tölurnar sem staðfesti að það væri ekkert annað í stöðunni en að panta góða kampavín á borðið til að skála. Vinningshafinn sagði að það hefði verið yndislegt að fá fréttirnar um vinninginn umkringdur sínum bestu vinum sem að sjálfsögðu samglöddust innilega. 

Búðaferð sem breytir lífinu 

Á þriðjudaginn kom svo þriðji vinningur í EuroJackpot til Íslands og færði eiganda sínum tæpar 70 milljónir. Sá hafði keypt miðann sinn á sölustað, Kjörbúðinni í Garði og fór sjálfur yfir hann. Hann ætlaði þó ekki að trúa því að hann væri með fimm réttar tölur og vinning upp á tæpar 70 milljónir svo hann rétti konu sinni miðann og bað hana um að staðfesta þetta. Að því loknu sagðist vinningshafinn hreinlega hafa þurft að fara í kalt bað. Þau hjónin hafa ákveðið að þiggja fjármálaráð sem öllum vinningshöfum stendur til boða og greiða upp húsnæðislánið sitt. Það sem út af gengur verður svo sett í góða ávöxtun og haft sem varasjóður. „Tilhugsunin um að verða bæði skuldlaus og að eiga varasjóð er algjörlega ólýsanleg“, sagði vinningshafinn glaður. 

Við óskum vinningshöfunum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

 

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 20. október

Einn heppinn Svíi var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 2,6 milljarða í vinning.  Enginn var með 2. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá voru sjö með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 15 milljónir  í vinning. Miðarnir sjö voru keyptir í Þýskalandi. Þá var einn Íslendingur með 4. vinning og hlýtur rú... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 16. október

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot útdrætti kvöldsins, en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra 64.2 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Hollandi, Spáni og Svíþjóð. Þá voru sjö miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 20 milljónir króna. Fjórir m... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 13. október

Einn stálheppinn Þjóðverji var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 16,2 milljarða króna í vinning. Þá voru sjö með 2. vinning og fær hver þeirra 404 milljónir króna. Tveir miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, einn í Danmörku, einn í Noregi, einn í Svíþjóð,  einn í Póllandi og einn í Finnlandi. Fimmtá... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 10. október

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 424 þúsund í vinning. Miðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund kr... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir