Fréttir

lotto

35 Milljónir reyndust ekkert grín!

24. Nov 2023, 13:30

Hún reyndist mjög heppin, en ekki mjög trúgjörn, fjögurra barna móðirin sem var ein með allar tölur réttar í Lottó þarsíðasta laugardag. Hún var alveg viss um að einhver væri að grínast í henni þegar fulltrúi frá Íslenskri getspá hafði samband með góðu fréttirnar; að hún hefði unnið rúmlega 35 skattfrjálsar milljónir.

Að símtalinu loknu fletti hún því númerinu sem hringt var úr upp á já.is til að kanna hver stæði að baki þessu vel leikna símaati. Það var ekki fyrr en staðfestingin hafði fengist úr símaskránni að hún leyfði sér loksins að fagna þessum frábæru tíðindum.

Sú heppna er enn í skýjunum með vinninginn og segist ætla að þiggja ókeypis fjármálaráðgjöf ásamt eiginmanni sínum en þau sjá fram á að geta greitt niður skuldir og jafnvel keypt heppilegra húsnæði fyrir sína stóru fjölskyldu.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk,
sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 96,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 298 þúsund krónur í vasann. Fjórir miðar voru keyptir á appinu okkar Lottó, einn á vefsíðu okka... Lesa meira

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - Þrefaldur pottur næst!

Hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn gengu út í Lottó útdrætti vikunnar.verður potturinn þrefaldur næsta laugardag. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn er í áskrift. Svo voru tólf miðahafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 125.000 kr hver. Fimm miðar eru í áskr... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir