Fréttir

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

25. Sep 2026, 11:36

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár.

Miðinn góði úr Fjarðarkaupum reyndist vera gulls ígildi. Hann var sá eini sem var með allar tölurnar réttar og skilaði eiganda sínum öllum sexfalda Lottópottinum, tæpum 130 milljónum króna. Konan, sem er á níræðisaldri, gerði sér þó ekki grein fyrir því fyrr en daginn eftir þegar sonur hennar sá fréttir af útdrættinum. Hann brá sér þá í heimsókn til móður sinnar og fór yfir tölurnar með henni. Þegar ljóst var að hún væri eigandi vinningsmiðans var hann umsvifalaust læstur inni í skáp og fyrst þá var hægt að deila gleðitíðindunum með hinum börnunum.

Þetta varð til þess að börnin hennar og makar áttu fremur svefnlitla nótt en konan sjálf sagðist hafa sofið eins og ungabarn þrátt fyrir stórvinninginn. Á mánudeginum var skápurinn opnaður á ný, vinningsmiðinn sóttur og ekið með viðhöfn í höfuðstöðvar Íslenskrar getspár í Laugardalnum þar sem vinningurinn var formlega staðfestur. Að því loknu var gleðin augljós og vinningshafinn sagðist vart hafa náð að meðtaka þessar stórkostlegu fréttir enn sem komið var.

Íslensk getspá óskar vinningshafanum og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með vinninginn og þakkar um leið öllum spilurum fyrir veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 10. október

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 424 þúsund í vinning. Miðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund kr... Lesa meira

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir