Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is.
Heppinn áskrifandi var einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir króna í vinning. Þá voru sex miðahafar með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í sinn hlut. Fjórir miðanna eru í áskrift og tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu.
Fréttir
lotto
Einn með 1. vinning í Lottó!
26. Sep 2026, 19:18