Fréttir

getraunir

Tveir tipparar með 2.5 milljónir króna

27. Dec 2023, 15:47

Tveir tipparar unnu 2.5 milljónir hvor á Enska getraunaseðilinn í gær, þriðjudag. Annar tipparinn, sem er úr Grindavík, keypti sjálfvalsmiða í appinu og hafði ekki hugmynd um að hann hefði verið með 13 rétta þegar hringt var í hann í dag frá Íslenskum getraunum. „Ég heyrði auglýsingu frá Getraunum og hugsaði með mér, úr því að bróðir minn gat fengið 13 rétta hlýt ég að geta það líka svo ég keypti einn miða og notaði bara sjálfval“ sagði kampakátur tipparinn.

Hinn tipparinn sem styður Breiðablik keypti sinn fyrsta getraunaseðil á árinu og hafði þrítryggt tvo leiki og tvítryggt tvo leiki, þar á meðal lokaleik getraunaseðilsins sem var Man. Utd. – Aston Villa þar sem hann setti táknin 1 og X. „Ég var nú frekar svekktur með stöðuna í hálfleik þar sem Aston Villa leiddi með tveim mörkum, bæði af því að seðillinn var úti og líka vegna þess að ég er stuðningsmaður Man. Utd“ sagði tipparinn þegar haft var samband við hann í dag. Hann tók þó gleði sína á ný þegar Man. Utd gerði 3 mörk í síðari hálfleik, tryggði sér sigurinn og tipparanum 2.5 milljónir króna í vinning.

getraunir

Skagamenn gleðjast í getraunum

Félagakerfi ÍA sló í gegn og fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag. Vinningurinn var um 900 þúsund krónur. Fjölmargir Skagamenn eru þátttakendur í félagakerfinu og fá þeir allir glaðning í sinn hlut. Einn tippari til viðbótar var með 13 rétta en sá er búsettur í Borgarnesi, steinsnar frá Akranes... Lesa meira

1x2

getraunir

Fékk 13 rétta tvisvar í röð

Glúrinn tippari var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum og fær rúma milljón krónur í vinning. Ekki nóg með það heldur var hann líka með alla leikina rétta á síðasta Sunnudagsseðli og hlaut þá tæpar 200.000 krónur í vinning. Tipparinn býr á Akureyri og styður Skautafélag Akureyrar. Einn tippari var með alla ... Lesa meira

getraunir

Einn tippari með 128 milljónir

Enski getraunaseðillinn reyndist tippurum erfiður um helgina og settu fimm jafntefli á seðlinum strik í reikning margra. Enda fór það svo að aðeins einn sænskur tippari var með alla leikina 13 rétta. Alltaf þegar aðeins einn tippari er með alla leikina rétta fær hann tryggðar í sinn hlut 10 milljónir sænskra króna eða ... Lesa meira

getraunir

Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund

Stuðningsmaður KFS úr Vestmannaeyjum vann rúmar 700 þúsund krónur á Miðvikudagsseðilinn hjá Íslenskum getraunum. Stuðningsmaðurinn keypti sparnaðarkerfi S 4-4-144 með fjórum tvítryggðum og fjórum þrítryggðum leikjum sem kostaði 1.872 krónur. KFS, sem leikur núna í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu er samt sem áður... Lesa meira

getraunir

Tveir hjá ÍFR með 13 rétta

Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og  vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR ha... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir