Lottóvinningshafinn sem var einn með allar tölur réttar um síðustu helgi er fundinn og er fyrir vikið hátt í 9 milljón krónum ríkari. Sú heppna hafði keypt miðann í appinu en var aðeins með heimasíma skráðan og úrelt netfang. Þegar fréttir tóku að birtast um leitina, kíkti hún því í appið og sá þar góðu fréttirnar og hafði umsvifalaust samband við skrifstofu Íslenskrar getspár. Vinningshafinn er að vonum lukkuleg með allar milljónirnar og hefur þegar uppfært allar sínar upplýsingar í Lottóappinu og hvetur aðra spilara til að gera slíkt hið sama.
Tengdar fréttir
lotto
Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 3faldur í næsta útdrætti. Tveir miðahafar voru með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra rúmar 240 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á vef okkar lotto.is og í Lottó appinu. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en sex miðahafar voru með 2... Lesa meira
lotto
Potturinn verður tvöfaldur næst þar sem Lottó potturinn gekk ekki út í kvöld! Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 1,5 milljónir í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Enginn var með Jókerinn í kvöld en sex voru með 2. vinning og fær hver og einn 125 þúsund krónur fyrir það. Tveir miðar voru keyptir ... Lesa meira
lotto
Það var sannkallað heppniskvöld hjá einum spilara síðastliðið laugardagskvöld þegar þrefaldur Lottópottur skilaði honum ríflega 45 milljóna króna fyrsta vinningi. Vinningsmiðinn, sem kostaði aðeins 900 krónur, var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni. Þegar hann sá síðastliðinn sunnudag að fyrsti vinningur hafði gengið ú... Lesa meira
lotto
Stálheppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rétt rúmar 45 milljónir króna í vinning. Miðann keypti hann í Happahúsinu í Kringlunni. Enginn var með bónusvinninginn í útdrætti kvöldsins. Einn heppinn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jókernum og hlýtur h... Lesa meira
lotto
Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem fyrsti vinningur gekk ekki út. Bónusvinningurinn gekk ekki heldur út og verður hann tvöfaldur næst. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær hann 2,5 milljónir króna fyrir það. Miðinn er í áskrift. Þá voru sjö voru með 2. vinning í Jóker o... Lesa meira