Lottópotturinn verður sjöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Tveir heppnir miðahafar voru með bónusvinninginn og fá þeir 611 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is og hinn í appinu.
Enginn var með Jókerinn í kvöld en 15 miðahafar voru með 2. vinning. Hver og einn þeirra fær 125 þúsund krónur. Þrír miðar eru í áskrift, fjórir keyptir í appinu, þrír á lotto.is, tveir á Jolla í Hafnarfirði, einn á Sbarro Akranesi og einn í Happahúsinu.