Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot að þessu sinni, en heppinn Dani var einn með 2. vinning og fær fyrir það tæpar 205 milljónir króna. Einn var með 3. vinning og fær hann rúmlega 115 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Litháen.
Einn miðaeigandi var með 1. vinning í Jókernum og fær hann 2,5 milljón krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fjórir með 2. vinning og fá þeir125 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Happahúsinu í Kringlunni, tveir á lotto.is og einn í appinu.