Fréttir

getraunir

Húskerfin gáfu 13 rétta og 500 þúsund krónur í vinning

30. Oct 2023, 13:37

Tveir seðlar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og voru báðir í eigu svokallaðra húskerfa sem mörg íþróttafélög hafa tekið upp á síðastliðnum árum. Annar seðillin var í eigu húskerfis Knattspyrnufélags Fjallabyggðar og er þetta í annað sinn í vetur sem safnað er í húskerfi og tippað. Fyrra sinnið var fyrir fjórum vikum síðan og þá sló kerfið líka í 13 rétta. Verður áhugavert, í ljósi góðs árangurs, að fylgjast með hvort stjórnendur húskerfis Knattspyrnufélags Fjallabyggðar láti áfram líða 4 vikur á milli þess sem þeir tippa á Enska getraunaseðilinn. 

Húskerfi Hauka var líka með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum en Haukar hafa haldið úti öflugu getraunastarfi í mörg ár.  

Sunnudagsseðillinn gaf líka vel af sér og þar voru það Vestmannaeyingar úr KFS sem fengu 13 rétta og 900 þúsund krónur í vinning. Stuðningsfólk KFS hefur verið iðið við kolann og fengið marga stóra vinninga í getraunum gegnum tíðina.

getraunir

Vann 500 þúsund í getraunum

Einn íslenskur tippari var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum og fær hann í sinn hlut rúmar 500 þúsund krónur. Tipparinn keypti opinn seðil með þrjá þrítryggða leiki, 6 tvítryggða og fjóra með einu merki.

getraunir

Dortmund - Barcelona

Því miður voru stuðlarnir á leik Dortmund - Barcelona sem fram fer 15. apríl rangir og höfðu víxlast frá stuðlum fyrri viðureignarinnar sem er Barcelona - Dortmund sem fram fer 9. apríl. Íslenskar getraunir endurgreiða þeim tippurum sem tippað hafa á leikinn með stuðlinum 1.0 í samræmi við 25. grein reglugerðar fyrir Í... Lesa meira

eurojackpot

vikinglotto

getraunir

Sumartími í Evrópu – breyttur afgreiðslutími

Nú er sumartíminn genginn í garð víðast hvar í Evrópu og hefur það áhrif á hvenær lokað er fyrir sölu í Vikinglotto, EuroJackpot og á Enska getraunaseðlinum. Lokað er fyrir sölu klukkan 16:00 á miðvikudögum í Vikinglotto, klukkan 17:00 á þriðjudögum og föstudögum í EuroJackpot og klukkan 13:00 á laugardögum á Enska get... Lesa meira

getraunir

Gjöfult í getraunum

Einn tippari var með 13 rétta á Sunnudagsseðlinum og hlýtur hann um 2 milljónir króna í vinning. Tipparinn var með níu leiki tvítryggða, einn leik þrítryggðan sem var leikur Man. Utd – Fullham og þrjá leiki með einu merki. Fjórir tipparar voru svo með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum og fá þeir rúmlega 500 þúsund krón... Lesa meira

getraunir

XG hættir

Ákveðið hefur verið að hætta að bjóða upp á leikinn XG sem hefur verið rekinn í samstarfi við Svenska Spel síðan haustið 2022. Það er sameiginleg ákvörðun fyrirtækjanna að hætta með leikinn og verður uppsafnaður vinnings pottur XG notaður til að búa til risapotta á Getrauna seðlum í samstarfi við Svenska Spel. Síðasti ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir