Lottópotturinn verður ferfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur í vasann.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm miðahafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 125.000 kronur hver. Þrír eru í áskrift og tveir voru keyptir í Lottó appinu.