Fréttir

lotto

Hélt að verið væri að gera grín í sér

19. Jun 2026, 14:42

Einn heppinn og tryggur áskrifandi vann tvöfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag og fékk rúmar 27,7 milljónir króna í sinn hlut. Vinningurinn er skattfrjáls og kemur sér einstaklega vel þar sem vinningshafinn er að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum.

Það tók þó dágóða stund fyrir vinningshafann að átta sig á fréttunum því þegar haft var samband með gleðifréttirnar var hann nefnilega alveg sannfærður um að einhver væri að atast í honum.

„Ég hélt bara að þetta væri eitthvað grín,“ sagði hann hlæjandi og bætti við að hann hefði enga hugmynd haft um vinninginn þar sem hann er með miða í áskrift. „Ég var ekki búinn að fá tölvupóst eins og venjulega þegar ég vinn, þannig að ég var alveg viss um að þetta gæti ekki verið rétt.“

Skýringin er sú að þegar um stærri vinninga er að ræða eru ekki sendar tilkynningar í tölvupósti heldur haft beint samband við vinningshafa persónulega til að færa þeim fréttirnar.

Þegar loks hafði  tekist að sannfæra þann heppna um að hér væri ekkert grín á ferðinni, var hans fyrsta verk að hringja í eiginkonu sína og segja henni tíðindin. Þá tók ekki betra við. „Hún trúði mér ekkert frekar en ég trúði þessu fyrst sjálfur,“ segir hann og hlær. „Hún var alveg viss um að ég væri að reyna að vera fyndinn.“

Eins og áður sagði kemur vinningurinn á besta tíma fyrir hjónin sem hafa verið að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum. Að þeirra sögn mun þessi óvænti vinningur létta mikið undir með þeim og opna fleiri áhugaverð tækifæri.

lotto

Úrslit í Lottó 22. ágúst - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Þrír miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 164 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Hagkaup á Akureyri, lotto.is og Lottó appinu. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en t... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 15. ágúst

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 821 þúsund krónur í vinning. Vinningsmiðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en sex voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra... Lesa meira

lotto

„Eins og eitthvað væri að pikka í mig...“

Tvær ólíkar leiðir að stóru Lottóvinningunum um síðustu helgi Það voru tveir vinningshafar sem skiptu með sér einföldum 1. vinningi í Lottó síðastliðinn laugardag og fær hvor um sig rúmar 5,9 skattfrjálsar milljónir króna í vinning. Þau heppnu eru bæði rétt rúmlega fimmtug og búsett á höfuðborgar-svæðinu. Og þótt þau h... Lesa meira

lotto

Tveir með 1. vinning - Úrslit í Lottó 8. ágúst

Tveir miðahafar voru með heppnina með sér og voru með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins. Fær hvor þeirra rúmar 5,9 milljónir króna í sinn hlut.  Annar miðinn var keyptur í Lottó appinu en hinn er í áskrift. Enginn var með bónusvinning kvöldsins. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en þrír miðahafar voru með 2. vi... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 1. ágúst - Einn með 1. vinning

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn er í áskrift. Fimm skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 83 þúsund krónur. Fjórir miðar eru í áskrift og einn miðinn var keyptur inn á Lottó appinu. Enginn var með 1. vinning ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir