Fréttir

lotto

Bað pabba sinn um hjálp – hinn dreymdi um stærra heimili

8. Dec 2025, 15:50

Tveir spilarar voru heppnastir allra í Lottó um síðustu helgi þegar þeir skiptu með sér sjöföldum fyrsta vinningi og hlutu rúmlega 79,3 skattfrjálsar milljónir hvor. Annar vinningshafinn er búsettur á Suðurnesjum, hinn á Norðurlandi og báðir keyptu miðana sína á netinu. Hvorugt þeirra vissi af vinningnum þegar við náðum í þau. Gleðisímtölin bárust á mánudagsmorgni og voru í senn óvænt og eftirminnileg.

Fyrri vinningshafinn, tæplega fimmtug fjölskyldukona, brast í grát af gleði þegar hún fékk fréttirnar í símanum. „Þessi vinningur gæti hreinlega ekki komið á betri tíma,“ sagði hún. Hún valdi tölurnar sjálf, eins og hún gerir alltaf, en í þetta skiptið horfði hún á mynd af föður sínum sem féll frá fyrr á árinu og bað hann um að hjálpa sér. „Þessi mánudagur er örugglega minn besti eða næstbesti mánudagur til þessa,“ bætti hún við og hló: „Vá, hvað minn maður verður ánægður með mig núna!“

„Nú get ég loksins borgað upp námslánin og hjálpað börnunum með þeirra nám - en fyrsta verkið verður að endurnýja bílinn sem hefur beðið alltof lengi,“ sagði hún og bætti við að hún trúði varla eigin heppni.

„Getum við í alvörunni núna stækkað við okkur?“

Hinn vinningshafinn er karlmaður rétt um fertugt. Fjölskyldan hefur stækkað ört og því lengi verið kominn tími á stærra heimili. Þau hjónin hafa verið að skoða allmikið undanfarið en sáu ekki fram á að ráða við kaupin þar til nú. „Getum við í alvörunni núna farið og stækkað við okkur?“ var fyrsta setningin sem eiginkonan sagði við hann þegar gleðifréttirnar bárust. Með vinningnum breytist staðan algjörlega, og fjölskyldan getur nú loksins látið drauminn um stærra heimili rætast á öruggum grunni.

„Þetta breytir öllu – nú getum við loksins látið drauminn um stærra heimili rætast,“ sagði hann.

Við óskum vinningshöfunum báðum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Úrslit í Lottó 30. maí - einn með 1. vinning!

Heppinn áskrifandi var einn með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 11 milljónir króna í vinning. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor þeirra 203 þúsund krónur. Miðarnir voru báðir keyptir á heimasíðu okkar, lotto.is. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en ... Lesa meira

lotto

eurojackpot

Líf og fjör hjá Íslenskri getspá

Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum. Það hefur verið líf og fjör hjá Íslenskri getspá í vikunni, enda hafa vinningshafar lagt leið sína á skrifstofu Getspár eftir stóra vinninga sem féllu um síðustu helgi. Á föstudagskvöldið kom 2. vinningur í EuroJackpot til Íslands, rúmar 336 milljónir króna. Vin... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - Einn með 1. vinning

Ljónheppinn Lottó spilari var einn með 1. vinning í Lottó útdrætti vikunnar og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn er í áskrift. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 1,5 milljón króna í sinn hlut. Miðinn er í áskrift. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en sex miðaha... Lesa meira

lotto

Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir

Lottópotturinn síðastliðinn laugardag var sexfaldur og fyrsti vinningur nam rúmum 130,9 milljónum króna. Það var rúmlega áttræð kona í Reykjavík sem reyndist vera hinn heppni vinningshafi, en hún hafði keypt miðann sinn á lotto.is. Vinningshafinn var nývöknuð á mánudagsmorgni þegar gleðisímtalið barst henni. Hún hafði ... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - Einn með 1. vinning

Einn heppinn með 1. vinning og fær hann  rúmar 130,9 milljónir króna í vinning. Hann keypti miðann á heimasíður okkar, lotto.is. Enginn var með bónusvinninginn í útdrætti kvöldsins. Jókerinn gekk ekki út en 16 voru með 2. vinning og fær hver um sig 125.000 krónur. Átta miðar voru keyptir í appinu, þrír á lotto.is, tvei... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir