Fréttir

lotto

Tveir með 1. vinning í Lottó

9. Mar 2024, 19:27

 Tveir ljónheppnir spilarar skiptu þreföldum 1. vinningi með sér en hann nam rúmlega 35 milljónum króna og fær því hvor um sig rúmar 17,8 milljónir í sinn hlut.  Annar miðinn var keyptur í Skalla í Hraunbæ, Reykjavík en hinn er í áskrift.  Fjórir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver um sig rúmlega 174 þúsund krónur, þrír miðanna eru í áskrift en einn var keyptur í appinu. 

 

Einn var með 1. vinning í Jóker og hlýtur því 2ja milljóna króna vinning, sá keypti miðann sinn í Olís við Langatanga í Mosfellsbæ.  Þá voru fjórir með 2. vinning í Jóker sem nemur 100 þúsund krónum, tveir þeirra eru með miðana sína í áskrift, einn keypti á lotto.is og einn í Krambúðinni í Reykjanesbæ.

lotto

Úrslit í Lottó 25. júlí - Einn með 1. vinning

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Einn var með bónusvinninginn og fær rúmar 390 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Hagkaup Eiðistorgi. Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þú... Lesa meira

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 96,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 298 þúsund krónur í vasann. Fjórir miðar voru keyptir á appinu okkar Lottó, einn á vefsíðu okka... Lesa meira

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir