Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en einn heppinn miðahafi í Svíþjóð var einn með 2. vinning og hlýtur rúmar 229,4 milljónir króna. Sex miðahafar voru með 3. vinning og fá þeir rúmar 21,5 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Svíþjóð, Spáni og þrír í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 125 þúsund krónur hvor í vinning. Annar miðanna var keyptur á lotto.is og hinn miðinn er í áskrift.