Fréttir

lotto

Páskaleikur

40 ára aldursmunur á vinningshöfum

10. Apr 2026, 14:21

Tveir heppnir skiptu með sér 176,5 milljóna Lottópotti

Glæsilegur 7-faldur pottur var í Lottó um páskana og nam fyrsti vinningur alls 176.505.440 krónum. Tveir heppnir miðaeigendur skiptu með sér pottinum og fá hvor um sig rúmlega 88,2 milljónir króna. Vinningshafarnir keyptu miðana sína í Lottóappinu, en 40 ára aldursmunur er á þeim og viðbrögðin við vinningnum ólík.

 „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu,“ sagði annar vinningshafinn aftur og aftur þegar hún fékk gleðisímtalið. Konan, sem er rúmlega sextug og nýhætt að vinna, sagðist oft hafa velt því fyrir sér í gegnum tíðina hvernig það væri að fá símtal sem þetta.
„Hvaða dagur er í dag?“ spurði hún á meðan hún reyndi að ná utan um gleðifréttirnar. „Þetta er dagur sem ég á aldrei eftir að gleyma.“

Hún sagði vinninginn gjörbreyta öllu fyrir þau og bætti við að börnin myndu líka fá að njóta með þeim.

 Hinn vinningshafinn er rúmlega tvítugur og tók fréttunum með meiri yfirvegun. Hann var búinn að sjá vinninginn í appinu og átti því von á símtalinu, en sagðist þó vera feginn að fá endanlega staðfestingu. Vinningurinn kemur sér afar vel, þar sem hann er einmitt í þeim sporum að vera að koma sér upp eigin heimili.

 

Fleiri gleðisímtöl síðustu daga vegna Páskaleiksins.

Ekki lét gleðin þar við sitja, því einnig var dregið í Páskaleiknum þar sem 20 heppnir miðaeigendur hlutu eina milljón króna hver. Búið er að hafa samband við alla vinningshafa sem keyptu miðana sína á netinu, í Lottóappinu eða eru í áskrift.

Þrír vinningamiðar voru keyptir á sölustöðum og eru tveir þeirra ósóttir. Þeir miðar voru keyptir á eftirfarandi sölustöðum:

 

  • N1, Blönduósi – vinningsnúmer 10311609

  • Fjarðarkaup, Hafnarfirði – vinningsnúmer 10351267

Allar upplýsingar um úrslit Páskaleiksins má finna á lotto.is/urslit/paskaleikur

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 10. október

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 424 þúsund í vinning. Miðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund kr... Lesa meira

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir