Fréttir

getraunir

vikinglotto

eurojackpot

lotto

Nýr vefur Getspár/Getrauna

11. Feb 2024, 13:00

Nýr vefur hefur verið tekinn í notkun hjá Getspá/Getraunum.

Við hönnun á nýjum vef hefur verið kappkostað að gera hann skýrari og einfaldari með það að markmiði að upplifun og aðgengi viðskiptavina verði sem best.
Framsetning leikja, úrslita og upplýsinga til viðskiptavina hefur verið einfölduð til muna og virkar vefurinn á sama hátt, hvort heldur sem viðskiptavinur notar tölvu, spjaldtölvu eða síma.

Öryggismál eru afar mikilvæg í rekstri Getspár/Getrauna og því voru öryggismálin uppfærð á sama tíma.

Auk þessa geta viðskiptavinir valið um hvort þeir nota eitt greiðslukort fyrir allar færslur, eða hvort þeir kjósa að nota tvö mismunandi greiðslukort, annað fyrir ákskriftir og hitt fyrir einstök miðakaup.   

vikinglotto

Úrslit í Vikinglotto 3. júní 2026

Enginn var með 1. vinning í Vikinglotto í kvöld en einn heppinn Norðmaður var með 2. vinning. Sá heppni fær rúmar 56 milljónir í vinning. Þá var einn miðahafi með hinn al-íslenska 3. vinning og fær rúmlega 9,8 milljónir króna í sinn hlut. Sá keypti miðann í Lottó appinu. Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð í... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 2. júní

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en heppinn Ítali var einn með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 192 milljónir króna. Þá var heppinn Þjóðverji einn með 3. vinning og fær hann 108 milljónir króna í vinning. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins en einn miðah... Lesa meira

getraunir

Tipparar á skotskónum

Sá óvenjulegi atburður átti sér stað á sunnudags getraunaseðlinum að sami tipparinn var með alla leikina 13 rétta á tveim getraunaseðlum. Tipparinn sem styður Þrótt í Reykjavík fékk því í sinn hlut tvöfalda vinningsupphæðina eða rúmlega 700 þúsund krónur. Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðast... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 30. maí - einn með 1. vinning!

Heppinn áskrifandi var einn með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 11 milljónir króna í vinning. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor þeirra 203 þúsund krónur. Miðarnir voru báðir keyptir á heimasíðu okkar, lotto.is. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 29. maí

Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot að þessu sinni en heppinn Norðmaður var með 2. vinning og hlýtur hann rétt rúmar 260 milljónir króna í vinning. Þá voru sex miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 24 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Danmörku og hinir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi, ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir