Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en sjö miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rétt rúmar 48 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Svíþjóð, tveir í Finnlandi og einn í Ungverjalandi. Þá voru 27 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 7 milljónir króna. Sextán miðanna voru keyptir í Þýskalandi, þrír í Ungverjalandi, tveir í Svíþjóð, tveir í Póllandi, einn í Finnlandi, einn í Tékklandi, einn í Króatíu og einn í Danmörku. Þá var einn íslendingur á meðal þeirra 44 miðahafa sem voru með 4. vinning og fær hann 712 þúsund krónur í vinning. Miðann keypti hann í Lottó appinu.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fær hvor þeirra 125 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is.
Fréttir
eurojackpot
Úrslit í EuroJackpot 13. nóvember
13. Nov 2026, 20:02