Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en heppinn miðaeigandi í Tékklandi var einn með 2. vinning og fær hann rétt tæpar 770 milljónir króna í sinn hlut. Sjö Þjóðverjar og einn Slóvaki skiptu 3. vinningi á milli sín og fá þeir rúmlega 25 milljónir króna hver. Heppinn Íslendingur var á meðal þeirra 39 sem voru með 4. vinning og fær hann tæplega 860 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Hagkaupum á Akureyri.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en fjórir voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í vasann. Miðarnir voru keyptir í N1 v/Hringbraut, Reykjavík, Lottó appinu, lotto.is og einn er í áskrift.