Fréttir

lotto

„Þið hljótið að vera í skemmtilegasta starfinu – að fá að færa fólki svona fréttir!“

18. Jul 2025, 13:13

Það var bæði gleði og vantrú í bland þegar rúmlega sextug kona, sem hefur lengi verið áskrifandi að Lottó, mætti á skrifstofu Íslenskrar getspár eftir að hafa unnið tvöfaldan fyrsta vinning í síðasta útdrætti. Í sinn hlut fékk hún rúmlega 21 milljón króna, skattfrjálst. Hún var sú eina sem hafði allar tölurnar réttar í útdrættinum síðastliðinn laugardag og hafði ekki hugmynd um vinninginn fyrr en símtal barst frá Íslenskri getspá. Þegar hún mætti til að ganga frá málinu sagði hún brosandi:
„Þið hljótið að vera í skemmtilegasta starfinu – að fá að færa fólki svona fréttir!“


Konan, sem á eiginmann og uppkomin börn, hefur verið dyggur áskrifandi að Lottó í mörg ár. Hún segir að hún hafi alltaf litið á áskriftina sem leið til að styðja við íþróttahreyfinguna, sem hún telur hafa haft djúpstæð áhrif á líf sitt og barna sinna. „Ég á íþróttahreyfingunni svo ótrúlega mikið að þakka – bæði frá mínum yngri árum og gegnum börnin mín. Þess vegna hef ég alltaf séð áskriftina sem stuðning tilbaka,“ sagði hún.

 Eiginmaður hennar er fjarverandi vegna vinnu og hún hefur ákveðið að bíða með að segja honum gleðifréttirnar þar til hann kemur heim.
„Ég vil segja honum þetta augliti til auglitis,“ sagði hún og bætti við að hún væri enn að átta sig á tilfinningunum.

Aðspurð hvort hún væri byrjuð að skipuleggja hvað hún ætlaði að gera við vinninginn svaraði hún hlæjandi:

„Eina sem ég er búin að ákveða er að nú verður skipt um rúm – það er löngu tímabært!“
Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 10. október

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 424 þúsund í vinning. Miðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund kr... Lesa meira

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir