Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot að þessu sinni en þrír miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra 60,5 milljón króna. Einn miðinn var keyptur í Þýskalandi, annar miðinn í Litháen og þriðji miðinn var keyptur í Svíþjóð. Þá voru tveir miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra 51,2 milljón krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker í útdrætti kvöldsins en einn miðahafi var með 2. vinning og fær hann 125 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Fellasjoppunni á Egilsstöðum.