Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en þrír heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra 97.5 milljónir króna. Einn miðinn var keyptur á Spáni, annar í Slóvakíu og sá þriðji í Tékklandi. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og hver þeirra hlýtur 33 milljónir króna. Þeir miðar voru keyptir í Hollandi, Finnlandi, Noregi og tveir í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í í Jóker útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 125 þúsund krónur hvor í vinning. Annar var með miðann í áskrift og hinn keypti miðann á heimasíðunni okkar, lotto.is.