Fréttir

lotto

Góður mánudagur sem varð enn betri!

19. Jan 2026, 13:57

Mánudagsmorgun byrjaði með sérstakri gleði þegar tveir miðaeigendur fengu símtal um að þeir hefðu unnið fyrsta vinning í Lottóinu eftir sexfalda pottinn á laugardagskvöld. Fá þeir rúmar 67 skattfrjálsar milljónir hvor um sig og eiga það sameiginlegt að hafa keypt miðana sína í Lottóappinu.

Sá fyrri til að fá símtalið hafði kíkt í appið um helgina og séð vinningsröðina sína.
„Ég trúði þessu varla og vildi ekki einu sinni segja konunni frá þessu fyrr en þetta væri orðið alveg 100% öruggt og staðfest,“ sagði hann léttur í bragði og bætti við að sunnudagurinn hefði orðið „skringilega góður“ án þess að hann gæti útskýrt af hverju – enn sem komið var.

Seinni vinningshafinn hafði hins vegar enga hugmynd. Hann svaraði símtalinu á mánudagsmorgni glaðbeittur og átti vart til orð þegar honum var tilkynnt um vinninginn. „Þetta var þegar fínn mánudagur en hann varð skyndilega enn betri,“ sagði hann, hálf hikandi og dró andann djúpt á milli setninga til að átta sig á öllu saman. Hann bætti við að hann hefði bara keypt miðann til að vera með og eiga möguleikann – og svo alls ekki hugsað meira út í það, hvað þá átt von á slíku símtali.

Lottóappið hefur reynst vinsæll kostur meðal spilara sem vilja hafa hlutina á sem einfaldastan hátt – smella, sjá og halda í vonina. Í appinu er bæði auðvelt að kaupa staka miða og raðir, búa til áskrift og fylgjast með úrslitum. Að auki er hægt að skanna miða sem keyptir eru á sölustöðum til að kanna hvort þar leynist vinningur.

Báðum vinningshöfum stendur til boða fagleg fjármálaráðgjöf og hyggjast þeir nýta sér hana. Við óskum vinningshöfunum báðum innilega til hamingju og þökkum um leið þann stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög víða um land, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 10. október

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 424 þúsund í vinning. Miðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund kr... Lesa meira

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir