Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í Eurojackpot en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 72 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Póllandi, Þýskalandi og tveir í Noregi. Þá voru sjö miðahafar með 3. vinning og hlýtur hver þeirra rúmar 23 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Póllandi, tveir í Noregi og þrír í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2. vinning og hlýtur hann 125.000 krónur í vinning. Miðann var keyptur inn á Lottó.is.
Fréttir
eurojackpot
Úrslit í EuroJackpot 19. desember
19. Dec 2025, 20:14