Fyrsti vinningur gekk út í Lottó útdrætti kvöldsins en það voru 3 heppnir miðahafar sem skipta vinningsupphæðinni á milli sín og fá rúmar 3,1 milljónir hver. Einn miði var keyptur í Lottó appinu og tveir miðar eru í áskrift. Þá var einn áskrifandi með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 433 þúsund krónur í vinning.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrættinum en þrír miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Veganesti á Akureyri, OK Market í Reykjavík og einn miði er í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 5.012.