Fréttir

lotto

„Það að eiga lítið og skulda mikið heyrir nú sögunni til!“

2. Sep 2025, 13:47

Ung hjón með lítil börn unnu fimmfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag - rúmar 83,6 milljónir króna! Dagurinn hafði verið allskonar, verkefnin mörg, þreytan farin að segja til sín og konan orðin pínu buguð. Í miðjum amstri ákvað hún að kaupa sér lottómiða, eins og hún gerir stundum. Hún opnaði lottóappið, valdi sjálfval og hélt svo áfram með daginn.

Það var ekki fyrr en seint um kvöldið, rétt áður en hún ætlaði að fara að sofa, að hún mundi eftir miðanum. Hún opnaði appið og þar blöstu við gulir hringir í kringum allar tölurnar í einni línu. „Þetta getur ekki verið rétt,“ hugsaði hún. Maðurinn hennar trúði þessu heldur ekki. Þegar hann sá svo upphæðina efst í appinu sagði hann: „Þetta er bara upphæðin sem hægt er að vinna, ekki það sem við höfum unnið.“

„En tölurnar voru réttar – og upphæðin, skattfrjáls og ótrúleg, rúmar 83,6 milljónir króna, er nú á leiðinni inn á bankareikninginn þeirra.“

Þau vissu ekki hvort þau ættu að hlæja eða gráta en eitt var víst: Þau áttu mjög erfitt með að sofna. „Við höfum átt lítið og skuldað mikið en það heyrir nú allt í einu sögunni til,“ sagði vinningshafinn brosandi og enn hálf skjálfandi. Hún hafði keypt miðann eins og venjulega – án mikilla væntinga – en lífið breyttist á einni kvöldstund. Fjölskyldan ætlar að nýta vinninginn til að greiða niður skuldir, tryggja börnunum betri framtíð og leyfa sér að njóta lífsins aðeins meira.
„Við erum enn í smá sjokki – en ótrúlega þakklát.“

Við óskum þeim innilega til hamingju – og minnum á að stundum þarf ekki meira en einn miða til að breyta lífinu.

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 10. október

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 424 þúsund í vinning. Miðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund kr... Lesa meira

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir