Fréttir

eurojackpot

Endurvaldi tölurnar og endaði með milljónir !!

20. Jun 2025, 13:21

Þriðjudaginn 17. júní, á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga, hlaut heppinn Íslendingur glæsilegan vinning í EuroJackpot – rúmar 35 milljónir króna!

Vinningshafinn, sem er kona, keypti sjálfvalsmiða í gegnum Lottóappið og ákvað að hreinsa út tölurnar sem komu fyrst upp og fá nýjar í staðinn. Sú ákvörðun reyndist sannarlega skynsöm – því hún var ein af sex heppnum Evrópubúum sem skiptu með sér öðrum vinningi.

„Ég trúði þessu varla þegar símtalið kom frá Íslenskri getspá,“ segir hún og bætir við að það hafi verið frekar erfitt að klára vinnudaginn eftir slíkar fréttir. Hún ákvað þó að bíða með að segja manninum sínum frá vinningnum þar til þau voru komin heim – svo hann gæti allavega lokið sínum degi í ró og næði.

Hjónin, sem eru rík af börnum og barnabörnum, sjá fyrir sér að nota vinninginn í skemmtilegt fjölskyldufrí þar sem allir geta notið saman. „Það er dásamlegt að geta deilt svona gleði með sínum nánustu,“ bætir hún við.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 21. apríl 2026

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en tveir miðahafar skipta með sér 2. vinning. Hvor þeirra fær rúmlega 438 milljónir króna í sinn hlut en miðarnir voru keyptir í Þýskalandi og Madrid á Spáni. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og fá rúmlega 22 milljónir króna hver. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, ... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - Úrslit 17. apríl

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot í kvöld. Þrír skiptu með sér 3. vinningi og fá þeir tæpar 49 milljónir króna hver. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn á Spáni. Heppinn Íslendingur var einn af 29 sem fékk 4. vinning og fær hann  rúmlega 835 þúsund krónur í sinn hlut. Jókerinn gekk ekki út í ... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - engin með 1. vinning

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot í kvöld. Þrír skiptu með sér 3. vinning og fá þeir rúmar 33,9 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi og Ungverjalandi. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en einn var með 2. vinning og fær sá 125 þúsund krónur.  Miðinn var keyptur á lotto.is.

eurojackpot

EuroJackpot - 3. vinningur til Íslands

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot í kvöld. Hins vegar voru sjö miðarhafar með 3. vinning og var þar á meðal einn heppinn miðahafi á Íslandi sem keypti miðann sinn á Olís Ánanaustum. Þá voru tveir miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Noregi, einn í Króatíu og einn í Svíþjóð. Vinningshafarnir fá allir ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 7. apríl

Tveir ljónheppnir miðahafar skiptu með sér 1. vinning í EuroJackpot kvöldsins og fá þeir rúma 716 milljónir á mann. Annar miðinn var keyptur í Finnlandi og hinn í Slóvakíu. Þá voru þrír miðahafar með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 54 milljónir króna. Einn miði var keyptur í Finnlandi, einn í Danmörku og einn í Þýs... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir