Fréttir

lotto

Milljónum smalað til Hólmavíkur um réttarhelgina

20. Sep 2024, 13:36

Það var fleiru smalað en bara sauðfé á Ströndum á laugardag heldur rataði þangað einnig umtalsvert fé frá Lottóinu. Óvenju gestkvæmt var hjá heppinni konu á besta aldri á Hólmavík vegna smölunar, börn og barnabörn í húsi og varð uppi fótur og fit á heimilinu þegar ljóst var að hún hafði unnið óskiptan fyrsta vinning, um níu milljónir króna. En bæði aðdragandinn og eftirleikurinn voru með skrautlegra lagi.

Þetta byrjaði reyndar allt samkvæmt vana þegar konan keypti miðann sinn í Krambúðinni en hún hefur verið fastheldin á hefðirnar gegnum árin og alltaf farið á sölustað og spilað með sömu tölurnar, sem eru afmælisdagar, brúðkaupsdagar og fleira sem tengist fjölskyldunni. Það fór því vel á því að svona margir fjölskyldumeðlimir væru á staðnum með konan fylgdist með útdrættinum á RÚV samkvæmt vana. Okkar konu varð þó um og ó þegar réttu tölurnar byrjuðu að birtast á skjánum og urðu taugarnar svo þandar að hún slökkti á sjónvarpinu áður en síðasta talan var dregin út!

Tók þá við nær óbærileg bið þar til sonur hennar gat fengið staðfestar upplýsingar um lokatölurnar á lotto.is og brutust út mikil fagnaðarlæti hjá stórfjölskyldunni þegar ljóst var að stóri vinningurinn kæmi allur á Hólmavík. „Hvað ætlarðu að gera við peninginn sem Lottóið gaf þér“ spurði eitt barnabarnið breytti Frúnni í Hamborg þannig í Frúna á Hólmavík og uppskar hlátur viðstaddra.

Festu vinningsmiðann inn í fartölvu til öryggis

Þegar fólk hafði áttað sig á góðu fréttunum tók við mikil reikistefna meðal viðstaddra um hvernig skyldi varðveita vinningsmiðann þannig að hann mundi örugglega ekki týnast. Hafði hver sína hugmynd en á endanum varð sú frumlega lausn ofan á að losa rafhlöðuna úr fartölvu sonarins og koma miðanum dýrmæta fyrir þar á á bak við og festa á ný. Syninum var síðan falið að koma þessari lukkutölvu til höfuðstöðva Íslenskrar getspár á mánudeginum og rækti hann það hlutverk með sóma, þótt móðirin hafi reyndar séð ástæðu til að hringja tvisvar þann morguninn til að tryggja að allt væri á áætlun. Það má því segja að það hafi tekist vel að smala fé til Hólmavíkur þessa réttarhelgina. Þess ber þó geta að Íslensk getspá mælir ekki með því að vinningsmiðar séu almennt geymdir í rafhlöðuhólfi fartölva þótt allt hafi farið að óskum í þetta sinn.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Úrslit í Lottó 15. ágúst

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 821 þúsund krónur í vinning. Vinningsmiðinn er í áskrift. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en sex voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra... Lesa meira

lotto

„Eins og eitthvað væri að pikka í mig...“

Tvær ólíkar leiðir að stóru Lottóvinningunum um síðustu helgi Það voru tveir vinningshafar sem skiptu með sér einföldum 1. vinningi í Lottó síðastliðinn laugardag og fær hvor um sig rúmar 5,9 skattfrjálsar milljónir króna í vinning. Þau heppnu eru bæði rétt rúmlega fimmtug og búsett á höfuðborgar-svæðinu. Og þótt þau h... Lesa meira

lotto

Tveir með 1. vinning - Úrslit í Lottó 8. ágúst

Tveir miðahafar voru með heppnina með sér og voru með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins. Fær hvor þeirra rúmar 5,9 milljónir króna í sinn hlut.  Annar miðinn var keyptur í Lottó appinu en hinn er í áskrift. Enginn var með bónusvinning kvöldsins. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en þrír miðahafar voru með 2. vi... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 1. ágúst - Einn með 1. vinning

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn er í áskrift. Fimm skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 83 þúsund krónur. Fjórir miðar eru í áskrift og einn miðinn var keyptur inn á Lottó appinu. Enginn var með 1. vinning ... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 25. júlí - Einn með 1. vinning

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Einn var með bónusvinninginn og fær rúmar 390 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Hagkaup Eiðistorgi. Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þú... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir