Heppinn miðahafi var einn með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 9,9 milljónir í vinning. Miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni. Þá var einn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann rúmar 456 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Happahúsinu Kringlunni, í Skaftárskála á Kirkjubæjarklaustri, N1 Kaupvangi á Egilsstöðum, á vef okkar lotto.is og tveir miðanna eru í áskrift.