Fréttir

lotto

Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir

22. May 2026, 14:52

Lottópotturinn síðastliðinn laugardag var sexfaldur og fyrsti vinningur nam rúmum 130,9 milljónum króna. Það var rúmlega áttræð kona í Reykjavík sem reyndist vera hinn heppni vinningshafi, en hún hafði keypt miðann sinn á lotto.is.

Vinningshafinn var nývöknuð á mánudagsmorgni þegar gleðisímtalið barst henni. Hún hafði enga hugmynd um að hún væri með stóra vinninginn og tók fréttunum af slíkri yfirvegun að fyrstu viðbrögðin voru einfaldlega:
„Já, hérna.“

Eftir símtalið brá þó öðru við þegar hún hringdi í son sinn og sagði honum tíðindin. Hann brást við með mun meiri tilþrifum og varð, að hennar sögn, „hoppandi glaður“.

Konan, sem býr miðsvæðis í Reykjavík, lét vinninginn ekki hafa teljandi áhrif á daglegt líf sitt. Með bros á vör nýtti hún góða veðrið í vikunni til að rölta niður á skrifstofu Íslenskrar getspár og ganga frá undirritun vinningsins.

Aðspurð um framtíðarplön sagði hún að henni hefur alltaf þótt mikilvægt að láta gott af sér leiða og því væri líklegt að vinningurinn kæmi hennar nánustu einnig til góða. Þá sagðist hún lengi hafa dreymt um að ferðast til Asíu en hingað til hefði kostnaður staðið í vegi og nú hefur hún loksins tækifæri til að láta þann draum rætast.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning, sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 96,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 298 þúsund krónur í vasann. Fjórir miðar voru keyptir á appinu okkar Lottó, einn á vefsíðu okka... Lesa meira

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - Þrefaldur pottur næst!

Hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn gengu út í Lottó útdrætti vikunnar.verður potturinn þrefaldur næsta laugardag. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn er í áskrift. Svo voru tólf miðahafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 125.000 kr hver. Fimm miðar eru í áskr... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir