Fréttir

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

22. Jul 2026, 13:32

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi.

Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær parið því rúmlega 96,5 skattfrjálsar milljónir í sinn hlut.

Vinningshafinn, sem fulltrúi Getspár hringdi til, sagðist hafa séð að vinningurinn gekk út á miða keyptan í Lottóappinu. Honum datt þó ekki í hug að miðinn gæti verið hans þar sem engin tilkynning hafði borist í appinu eins og áður, þegar hann hafði hlotið smærri vinninga.

„Ég var alveg sannfærður um að ég hefði ekki unnið,“ útskýrði hann.

Þegar honum varð ljóst hvert erindið var þurfti hann að keyra út í vegkant og leggja bílnum.

„Guð minn góður! Ertu ekki að grínast? Vá, ég trúi þessu ekki!“

Eftir smá stund, þegar vinningshafarnir höfðu náð að meðtaka upplýsingarnar, rann svolítið upp fyrir þeim.

„Við erum orðin skuldlaus!“

Það fyrsta sem parið ætlar að gera er að greiða upp húsnæðislánið sitt. Vinningurinn hjálpar einnig til við að láta draum um framhaldsnám rætast, því nú þarf ekki að taka námslán.

„Þetta gefur okkur svo mikið frelsi og öryggi,“ sögðu vinningshafarnir ungu, í skýjunum yfir þessum gleðitíðindum.

lotto

Tveir með 1. vinning - Úrslit í Lottó 8. ágúst

Tveir miðahafar voru með heppnina með sér og voru með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins. Fær hvor þeirra rúmar 5,9 milljónir króna í sinn hlut.  Annar miðinn var keyptur í Lottó appinu en hinn er í áskrift. Enginn var með bónusvinning kvöldsins. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en þrír miðahafar voru með 2. vi... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 1. ágúst - Einn með 1. vinning

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn er í áskrift. Fimm skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 83 þúsund krónur. Fjórir miðar eru í áskrift og einn miðinn var keyptur inn á Lottó appinu. Enginn var með 1. vinning ... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 25. júlí - Einn með 1. vinning

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Einn var með bónusvinninginn og fær rúmar 390 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Hagkaup Eiðistorgi. Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þú... Lesa meira

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 96,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 298 þúsund krónur í vasann. Fjórir miðar voru keyptir á appinu okkar Lottó, einn á vefsíðu okka... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir