Fréttir

eurojackpot

Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!

23. Jul 2026, 14:17

Stórvinningshöfum í Lottóappinu fjölgar enn. Sá nýjasti bættist í hópinn á þriðjudagskvöldið þegar 2. vinningur í EuroJackpot, að upphæð 45,4 milljónir króna, gekk út til spilara á höfuðborgarsvæðinu. Vinningsmiðann keypti hann í appinu.

Vinningshafinn, sem er á fertugsaldri, opnaði appið stuttu eftir útdrátt og sá að hann hafði hlotið vinninginn. Þrátt fyrir það átti hann erfitt með að trúa eigin augum og beið eftir staðfestingarsímtalinu áður en hann leyfði sér að fagna.

Spilarinn heppni sagðist alltaf velja tölurnar sínar sjálfur og útskýrði að tölurnar, sem færðu honum stóra vinninginn, hefðu verið vandlega úthugsaðar. Spurður út í hvað taki nú við, viðurkenndi hann að hann hefði ekki fyllilega áttað sig á stöðunni ennþá.

„Ég er hreinlega ekki kominn svo langt að ákveða það,“ svaraði vinningshafinn, ynntur eftir því hvað yrði það fyrsta sem hann vildi nota stóra vinninginn í. Hann var þó viss um eitt: „Pottþétt eitthvað skemmtilegt!“

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

eurojackpot

EuroJackpot - Úrslit 7. ágúst

Stálheppinn Þjóðverji var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 4,6 milljarða króna í vinning. Þá voru sex með 2. vinning og fær hver þeirra 43 milljónir króna. Þrír miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Svíþjóð og einn í Póllandi. Þrettán miðahafar skiptu með sér 3. vinning og hlýtur hver þeirra r... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - úrslit 4. ágúst

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en einn miðahafi var með 2. vinning sem færir honum rúmar 189 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Noregi. Þá voru tíu miðaeigendur með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 10,6 milljónir króna. Fimm miðar voru keyptir í Þýskalandi, einn í Ítalíu, einn í Slóveníu, einn í ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 31. júlí 2026

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld. Þrír miðahafar voru með 2. vinninginn og fá tæplega 81 milljón króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Þýskalandi og Noregi. Þá voru þrír með 3. vinninginn en miðarnir voru keyptir í Hollandi, Króatíu og Þýskalandi. Hver og einn vinningshafi fær rúmlega 45,5... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 28. júlí 2026

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en einn miðahafi í Danmörku hlýtur 2. vinning. Sá heppni fær tæplega 174 milljónir króna í sinn hlut. Þá voru fjórir með 3. vinning og fá 24,5 milljónir króna hver. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Hollandi, Þýskalandi og Póllandi. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en tveir ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot - 1. vinningur til Spánar

Stálheppinn Spánverji var einn með 1. vinning í EuroJackpot og fær hann í sinn hlut rúma 10 milljarða króna. Þrír Þjóðverjar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 108 milljónir. Þá voru tuttugu og fjórir miðaeigendur með  3. vinning og fær hver þeirra rúmlega 7,6 milljónir í vasann. Tólf miðar voru keypti... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir