Einn stálheppinn Þjóðverji var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann tæpa 1.4 milljarð króna í vinning. Þá var annar Þjóðverji með 2. vinning og fær hann tæpar 168 milljónir króna. Þá voru þrír með 3. vinning og fær hver þeirra 31.5 milljónir króna. Tveir miðar voru keyptir í Þýskalandi og einn í Hollandi.
1. vinningur í Jókerinn gekk ekki út að þessu sinni en einn heppinn áskrifandi var með 2. vinning og fær hann 125 þúsund krónur í vasann.