Fréttir

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Milljólaleikur Getspár 2025

29. Nov 2025, 21:31

Jólaleikur Íslenskrar getspár

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 30. nóvember til klukkan 18:40 þann 27. desember.  Dregnir verða út 27 aukavinningar þann 27. desember, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.

Leikurinn hefst sunnudaginn 30. nóvember

Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Milljólaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á netinu og í appinu kemur lukkunúmerið fram á miðanum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift*.

Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í appinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 27. desember 2026.

Vinningsnúmer verða birt á vef Íslenskrar getspár.

Dregið verður 27. desember 2025.

Athugið:

•    Lukkunúmerin gilda aðeins 27. desember 2025.

•    Miðar sem innihalda 10 raðir eru með í leiknum, einnig kerfismiðar og miðar sem innihalda Jóker ef verðgildi miða er a.m.k. á við 10 raða miða í viðkomandi leik.

•    Margviknamiðar sem uppfylla ofangreint og eru keyptir eftir að leikurinn hefst (miðnætti 1. desember) fá lukkunúmer sem fer í pottinn jafn oft og miðinn gildir fram að útdráttardegi.

•    Allir áskriftarmiðar eru með í pottinum – óháð fjölda raða í áskrift*.

•    Vinningsnúmer eru birt á lotto.is

•    Til að vitja vinninga þarf að framvísa lukkumiðanum til Íslenskrar getspár fyrir 27. desember 2026.

Dæmi: 10 raða seðill í Lottó kostar 1.500 krónur og því fylgir lukkunúmer með þeim miða.

* Dæmi: Jóna er með 10 raðir í áskrift í Lottó og 8 raðir í Vikinglotto og 3 raðir í EuroJackpot á föstudögum.  Tölvukerfi Getspár útvegar Jónu sérstakt lukkunúmer fyrir hvern áskriftarmiða í hverjum útdrætti. Jóna fær því samtals 4 lukkunúmer fyrir EuroJackpot áskriftarmiðann sinn (5. 12. 19. og 26. desember) 4 lukkunúmer fyrir Lotto áskriftarmiðann sinn (6. 13. 20. og 27. desember) og 4 lukkunúmer fyrir Vikinglotto áskriftarmiðann sinn (3. 10. 17. og 24. desember).

lotto

Úrslit í Lottó 21. nóvember – 5faldur næst!

Potturinn stækkar og stækkar hann verður 5. faldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra tæpar 390 þúsund krónur. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á Lottó appinu Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 20. nóvember - Einn með 1. vinning!

Einn heppinn Svíi var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann tæpan 1.4 milljarð í vinning. Þrír voru með 2. vinning og fá þeir tæpar 80 milljónir hver um sig. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi . Þá voru sex með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 22 milljónir í vinning. Þá voru fjórir mi... Lesa meira

vikinglotto

Úrslit í Vikinglotto 18. nóvember

Fyrsti vinningur gekk ekki út í Vikinglotto þessa vikuna en heppinn Finni var einn með 2. vinning og fær hann rúmar 16,9 milljónir króna í sinn hlut. Hinn al-íslenski 3. vinningur gekk ekki út að þessu sinni. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins en fjórir voru með 2. vinning og f... Lesa meira

lotto

Lottó - 4. faldur næst!

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Fjórir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 162 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur á Olís á Siglufirði, einn miðinn á vef okkar lotto.is og tveir miðar eru í áskrift. Einn var með allar töl... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 13. nóvember

Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en sjö miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rétt rúmar 48 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Svíþjóð, tveir í Finnlandi og einn í Ungverjalandi. Þá voru 27 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir