Fréttir

lotto

eurojackpot

Líf og fjör hjá Íslenskri getspá

29. May 2026, 14:31

Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum.

Það hefur verið líf og fjör hjá Íslenskri getspá í vikunni, enda hafa vinningshafar lagt leið sína á skrifstofu Getspár eftir stóra vinninga sem féllu um síðustu helgi.

Á föstudagskvöldið kom 2. vinningur í EuroJackpot til Íslands, rúmar 336 milljónir króna. Vinningshafarnir eru eldri hjón sem keyptu miðann sinn hjá N1 við Austurveg á Selfossi.

Maðurinn fór sjálfur yfir miðann eftir að hafa heyrt að 2. vinningur hefði komið til landsins. Þegar hann sagði eiginkonu sinni frá vinningnum trúði hún honum ekki í fyrstu og var sannfærð um að hann væri einfaldlega að grínast.

Hjónin sögðust þegar telja sig rík, enda eiga þau bæði mörg börn og enn fleiri barnabörn og lögðu áherslu á að það skipti þau mestu máli. Þau sögðust strax hafa ákveðið að deila gleðinni með sínum nánustu, enda gæfi það þeim enn meira að sjá börnin og barnabörnin njóta góðs af vinningnum.

Barnabörnin eru ýmist að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði eða í námi, og því mun vinningurinn skipta sköpum fyrir marga í fjölskyldunni.

 

Vinningur sem kom á fullkomnum tíma.

Fyrsti vinningur í Lottó gekk út síðastliðinn laugardag þegar potturinn var einfaldur og nam vinningurinn rúmum 11 milljónum króna.

Vinningshafinn er ung kona rétt um þrítugt sem er með miðann sinn í áskrift. Hún er í fæðingarorlofi og sagði að vinningurinn hefði ekki getað komið á betri tíma og að hann myndi skipta miklu máli fyrir fjölskylduna.

Stutt er á milli barna hjá henni og því ekki langt síðan hún var síðast í fæðingarorlofi. Hún segir vinninginn muni gera þeim kleift að anda léttar og skapa meira svigrúm á þessum krefjandi en dýrmæta tíma í lífinu.

Við óskum vinningshöfunum innilega til hamingju og þökkum um leið fyrir veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot - 1. vinningur til Spánar

Stálheppinn Spánverji var einn með 1. vinning í EuroJackpot og fær hann í sinn hlut rúma 10 milljarða króna. Þrír Þjóðverjar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 108 milljónir. Þá voru tuttugu og fjórir miðaeigendur með  3. vinning og fær hver þeirra rúmlega 7,6 milljónir í vasann. Tólf miðar voru keypti... Lesa meira

eurojackpot

Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!

Stórvinningshöfum í Lottóappinu fjölgar enn. Sá nýjasti bættist í hópinn á þriðjudagskvöldið þegar 2. vinningur í EuroJackpot, að upphæð 45,4 milljónir króna, gekk út til spilara á höfuðborgarsvæðinu. Vinningsmiðann keypti hann í appinu. Vinningshafinn, sem er á fertugsaldri, opnaði appið stuttu eftir útdrátt og sá að ... Lesa meira

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot 21 júlí - annar vinningur til Íslands!

Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot að þessu sinni. Íslendingur, sem keypti sér miða í Lottó appinu, er meðal þeirra fimm miðahafa sem skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rétt rúmar 45 milljónir króna í vinning. Hinir miðarnir voru keyptir í Hollandi og þrír í Þýskalandi. Þá voru fjórir miðahafar sem ... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 96,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 298 þúsund krónur í vasann. Fjórir miðar voru keyptir á appinu okkar Lottó, einn á vefsíðu okka... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir